Breyttu sjónvarpinu í móttökunni í lifandi upplýsingaskjá
Notendur InfoSlides á Íslandi geta fengið aðgang að glærum sem eru aðlagaðar að íslenskum aðstæðum: norðurljósaspá, veðurviðvaranir, færð á vegum og staðbundnar fréttir. Spilaðu glærurnar í sjónvarpinu, glærur tengdar við gögn uppfærast sjálfkrafa. Hugmyndin að InfoSlides kerfinu kviknaði til að auðvelda ferðamönnum aðgengi að nákvæmum og uppfærðum upplýsingum sem skipta þá máli. Upplýsingarnar eru á víð og dreif og eru ekki allar aðgengilegar á einum stað. Þar sem veður og færð getur breyst skyndilega er mikilvægt að hafa sem nýjastar upplýsingar, bæði um veðurspá, yfirvofandi viðvaranir og færð á vegum. Síðan þróun kerfisins hófst hefur enn fleiri möguleikum verið bætt við, til dæmis yfirliti yfir flugáætlanir, yfirliti yfir snjóflóðavá og skriðuviðvörunum.
Sjáðu skjáinn í gangi
Fullbúin sýnisglærukynning með ábendingum fyrir ferðafólk og lifandi gögnum frá Íslandi. Hún spilast í vafra.
Réttar upplýsingar skipta máli
Það er hvergi mikilvægara en á Íslandi að ferðamenn hafi aðgang að réttum og uppfærðum upplýsingum.
Aðstæður geta breyst á augabragði
Útprentuð tilkynning segir gestum ekkert um núverandi aðstæður.
Upplýsingar eru á víð og dreif
Gestir þurfa einn skjá, ekki marga vafraglugga.
Handvirkar uppfærslur ganga ekki
InfoSlides sækir gögnin og birtir þau sjálfkrafa.
Aðstæður geta breyst á stuttum tíma. Það gera skjáir sem eru tengdir við InfoSlides líka. Veðurspáin frá því í morgun getur verið gagnslaus seinnipartinn. Færð og aðstæður geta breyst á hverjum klukkutíma, sérstaklega á veturna. Útprentuð tilkynning í afgreiðslunni segir gestum ekkert um núverandi aðstæður.
Gagnlegar upplýsingar eru á víð og dreif Færð og aðstæður á vegum eru hjá Vegagerðinni. Snjóflóðagögn og veðurviðvaranir eru á vef Veðurstofu Íslands. Gestir þurfa einn skjá, ekki marga vafraglugga.
Starfsfólk getur ekki staðið í að fylgjast með aðstæðum eða sjá um handvirkar uppfærslur Starfsfólkið þitt hefur í nægu að snúast, það getur ekki fylgst með hvernig vindurinn blæs eða hvort heiðin er fær. InfoSlides sækir gögnin og birtir þau sjálfkrafa.
Lifandi glærur hannaðar fyrir íslenskar aðstæður
Níu tilbúin sniðmát að glærum sem eru tengdar við gögn frá veðurstofunni, vegagerðinni og fleiri aðilum. Lifandi spilun sýnir hverja uppfærslu án þess að bíða eftir nýju myndbandi. Hvernig lifandi spilun virkar
Snjóflóðaspá
Hættustig, tegund og snjóþekja frá Veðurstofu Íslands.
Veðurviðvaranir
Virkar viðvaranir Veðurstofunnar, litakóðaðar eftir alvarleika.
Skriðuviðvaranir
Virkar skriðuviðvaranir á korti, með QR-kóða á nánari upplýsingar.
Norðurljósaspá
Norðurljósavirkni kvöldsins, myrkur og skýjahula.
Jarðskjálftar
Kort af jarðskjálftum síðasta sólarhrings eftir stærð.
Færð á vegum
Lifandi kort frá Vegagerðinni, litakóðað eftir færð.
Windy veðurkort
Hreyfimynduð vind-, úrkomu- eða bylgjukort frá Windy.com.
Staðbundin veðurspá
Þriggja daga spá fyrir hvaða staðsetningu sem er.
Íslenskar fréttir
Fyrirsagnir RÚV eða mbl.is birtast með öðru efni þínu.
Búðu til glæru
Lýstu aðstæðum dagsins og AI Studio býr til glæruna.
Snjóflóðaspá Sækir snjóflóðaspá Veðurstofu Íslands. Sýnir hættustig (stöðugt til mjög hátt), tegund snjóflóðahættu og lýsingu á snjóþekju.
Veðurviðvaranir Sækir upplýsingar um virkar og yfirvofandi viðvaranir frá Veðurstofu Íslands, litakóðaðar gular / appelsínugular / rauðar eftir tegund. Sýnir svæði á korti eða sem lista. Viðvaranir renna sjálfkrafa út þegar þær eru yfirstaðnar.
Skriðuviðvaranir Sýnir virkar skriðuviðvaranir frá Veðurstofu Íslands á korti af Íslandi, þar sem hvert svæði er í lit viðvörunarinnar og merkt með númeri sem passar við stuttan lista með svæði, orsök og tímabili. Nýjasta tilkynning skriðuvaktarinnar fylgir með og QR-kóði vísar gestum á vef Veðurstofunnar, gottvedur.is/skridur, þar sem allar leiðbeiningar eru. Glæran birtist aðeins á meðan viðvörun er í gildi og hentar bæði láréttum og lóðréttum skjáum.
Norðurljósaspá Norðurljósavirkni kvöldsins frá 0 til 9, hvenær dimmir, tunglið og hreyfimyndað skýjakort fyrir nóttina, svo gestir viti hvenær og hvert á að horfa. Uppfærist sjálfkrafa og sýnir ekki virkni á björtum sumarnóttum.
Jarðskjálftar Kort af jarðskjálftum síðasta sólarhrings frá Veðurstofu Íslands. Stærð hringja sýnir stærð skjálfta og liturinn hversu nýlegir þeir eru, og fimm stærstu skjálftarnir eru listaðir við hlið kortsins. Hægt er að velja lágmarksstærð til að sía litla skjálfta frá.
Færð á vegum Lifandi litakóðað kort frá Vegagerðinni. Miðpunktur og skali kortsins er stillanlegur. Sýndu allt landið eða einbeittu þér að tilteknu svæði.
Windy veðurkort Hreyfimyndað vind-, úrkomu-, hitastigs- eða bylgjukort tekið sjálfkrafa upp frá Windy.com. Spilað sem myndbandsbútur. Uppfærist sjálfkrafa.
Staðbundin veðurspá Þriggja daga spá fyrir hvaða staðsetningu sem er: hitastig, vindhraði, vindátt og aðstæður á 12 klukkustunda fresti. Knúið af ókeypis gögnum. Stilltu staðsetningu einu sinni, eða tengdu hana við GPS-hnit tækisins.
Íslenskar fréttir Tengdu RSS fréttaveitu RÚV eða mbl.is sem gagnalind. Fyrirsagnir birtast sjálfkrafa samhliða öðru efni þínu. Færð, snjóflóðastaða og nýjustu fréttir, í einni sjálfvirkri glærukynningu.
Búðu til flottar glærur Skrifaðu texta, límdu inn hlekk á Vegagerðina eða Veðurstofuna, eða lýstu hvað þú vilt fá á glæruna og AI Studio sér um afganginn.
Sýnishorn af glærukynningu fyrir hótel
Hér er sýnishorn af glærukynningu fyrir skjá í móttöku hótels: morgunverður, líkamsrækt, heilsulind og þjónusta hótelsins. Hún spilast í vafra og þú getur tekið afrit af henni inn í þitt eigið vinnusvæði.
Þrjú skref til að birta lifandi ferðagögn á skjáum þínum
Þú þarft ekki að kalla á tölvumanninn. Glærurnar uppfærast sjálfkrafa.
Tengdu gagnalind
Bættu við gagnalind í InfoSlides: snjóflóðaspá, færð á vegum eða aðrar glærur í íslenska glærupakkanum. Sláðu inn staðsetningu þína eða notaðu sjálfgefin gildi. Notendur á Íslandi fá aðgang að pakkanum.
Bættu við glæru í kynningu
Bættu glærunum inn í kynninguna þína. Stilltu röðina og hversu lengi hver glæra birtist. Blandaðu saman við PowerPoint-glærurnar þínar.
Paraðu gærurnar við sjónvarp og byrjaðu að birta efnið
Opnaðu vafra eða sæktu InfoSlidesTV app í tækinu þínu, sláðu inn pörunarkóðann og efni byrjar að spila. Gagnuppfærslur birtast sjálfkrafa á skjánum, enginn þarf að snerta sjónvarpið aftur.
Allt hótelið, ekki bara móttakan
Ef hótelið þitt notar IP-tengt IPTV-kerfi er hægt að birta efnið frá InfoSlides sem sérstaka rás á sjónvörpum í öllum herbergjum. Það sem þarf að gera til þess er að bæta slóðinni að strauminum frá InfoSlides við rásalista kerfisins. Gestir geta horft á efnið eins og aðrar rásir. Snjóflóðaspá, veðurviðvaranir og færð á vegum, fyrir utan aðrar gagnlegar upplýsingar sem þú vilt birta, aðgengilegt úr herberginu áður en farið er út í daginn.
Stuðningur er við IP-tengd IPTV-kerfi á borð við LG Pro:Centric, Samsung REACH og Philips MediaSuite. Eldri kerfi sem dreifa efni með RF/coax eru ekki studd.
Sérsniðið fyrir íslenska ferðaþjónustu
Hentar alls staðar þar sem gestir eða ferðamenn hafa gagn af upplýsingum um veðurútlit og færð.
Hótel og gistiheimili
Móttökuskjáir sem sýna veðurspá áður en gestir fara út í daginn.
Upplýsingamiðstöðvar
Einn skjár getur leyst heilan bunka af prentuðum bæklingum af hólmi - og alltaf með uppfærðum gögnum.
Bensínstöðvar
Gefðu viðskiptavinum upplýsingar um færð, veður og yfirvofandi veður viðvaranir í kaupbæti þegar þeir fylla á tankinn.
Bílaleigur
Birtu upplýsingar um færð og veðurskilyrði í rauntíma, þegar viðskiptavinir sækja bílinn sinn. Svo hann viti hvað bíður hans á vegum úti.
Flugvellir og hafnir
Farþegar hafa gagn af uppfærðum öryggis- og ferðaupplýsingum, sérstaklega á veturna.
Fjallaskálar og tjaldsvæði
Á afskekktum stöðum og þar sem gist er í tjaldi eða þar sem skilyrði breytast hratt eru rauntímagögn nauðsynleg.
Upplýsingaskjáir fyrir önnur fyrirtæki
InfoSlides hentar líka skrifstofum, skólum, veitingastöðum og líkamsræktarstöðvum.
Algengar spurningar
Hvaða gögn eru á glærunum sem hafa verið útbúnar?
Snjóflóðaspár, Norðurljósaspár, veðurviðvaranir og skriðuviðvaranir frá Veðurstofunni og færð á vegum frá Vegagerðinni, birt beint í streyminu og uppfært sjálfkrafa. Gögn frá flugvöllum Isavia.
Þarf einhver að uppfæra þetta á hverjum morgni?
Nei. Gagnaglærurnar uppfærast sjálfar, þannig að skjárinn sýnir nýjustu spá og færð án þess að nokkur komi nálægt.
Er viðmótið á íslensku?
Já, allt stjórnviðmótið er til á íslensku, ásamt ensku og fleiri tungumálum..
Hvaða búnað þarf skjárinn?
Hvaða snjallsjónvarp eða skjá sem er með vafra, parað með sex stafa kóða. LG- og Android TV-forrit eru í boði; Samsung-sjónvörp parast í gegnum innbyggða vafrann þar til Samsung-forritið hefur fengið samþykki í versluninni.
Settu upp fyrstu íslensku gagnaglæruna
Skráning er ókeypis. Þegar þú hefur skráð þig inn kveikirðu á íslensku glærunum hér á síðunni.
Skráning er ókeypis